Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 14. ágúst 2020 21:29
Magnús Már Einarsson
Pique heimtar breytingar hjá Barcelona - Gæti sjálfur farið
Gerard Pique.
Gerard Pique.
Mynd: Getty Images
„Við getum ekki spilað svona. Það er mjög erfitt að taka þessu. Það er ekkert annað sem hægt er að segja," sagði Gerard Pique, varnarmaður Barcelona, eftir ótrúlegt 8-2 tap liðsins gegn Bayern Munchen í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

„Félagið að gera breytingar og þá á ekki bara við leikmennina. Ég vil ekki benda á neinn ákveðinn."

„Fótbolti er íþrótt þar sem það er nauðsynlegt að vera stöðugt að breyta. Við verðum að breyta taktinum hjá okkur því að þetta er botninn. Við þurfum að líta í kringum okkur og treysta á að fólk geri réttu hlutina fyrir félagið."

„Ef ég verð að fara til að breyta hlutum þá verð ég sá fyrsti til að samþykkja það. Þetta var skelfilegur leikur...tilfinningin er ömurleg. Við þurfum að breyta skipulaginu á öllu hjá okkur."

Athugasemdir
banner
banner
banner