Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 14. september 2019 16:13
Kristófer Jónsson
Byrjunarliðin í úrslitaleik Mjólkurbikarsins: Kári Árnason ekki með
Sölvi Geir og Davíð Þór fara fyrir liðum sínum.
Sölvi Geir og Davíð Þór fara fyrir liðum sínum.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Kári Árnason er ekki orðinn heill.
Kári Árnason er ekki orðinn heill.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Núna klukkan 17:00 hefst leikur Víkings R. og FH í úrslitaleik Mjólkurbikars karla á Laugardalsvelli. Byrjunarliðin eru nú klár.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá Laugardalsvelli.

Landsliðsmaðurinn Kári Árnason er ekki í leikmannahópi Víkings í dag en hann meiddist í leik með Íslandi gegn Albaníu í vikunni.

Halldór Smári Sigurðarson byrjar í miðverðinum ásamt fyrirliðanum Sölva Geir Ottesen og eru þeir Logi Tómasson og Davíð Örn Atlason í bakvörðunum.

Þá er lítið óvænt að frétta úr liðskipan FH en þeir gera tvær breytingar á liðinu frá þeirra síðasta leik gegn Stjörnunni. Fyrirliðinn Davíð Þór Viðarsson kemur inná miðjuna og Jónatan Ingi fer uppá hægri kant. Út koma þeir Atli Guðnason og Þórir Jóhann Helgason.

Byrjunarliðin má sjá hér að neðan.

Byrjunarlið Víkings R.:
1. Þórður Ingason (m)
3. Logi Tómasson
6. Halldór Smári Sigurðsson
8. Sölvi Ottesen (f)
9. Erlingur Agnarsson
10. Óttar Magnús Karlsson
20. Júlíus Magnússon
21. Guðmundur Andri Tryggvason
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
23. Nikolaj Hansen
24. Davíð Örn Atlason

Byrjunarlið FH:
24. Daði Freyr Arnarsson (m)
3. Cédric D'Ulivo
4. Pétur Viðarsson
6. Björn Daníel Sverrisson
7. Steven Lennon
9. Jónatan Ingi Jónsson
10. Davíð Þór Viðarsson (f)
14. Morten Beck Guldsmed
15. Þórður Þorsteinn Þórðarson
16. Guðmundur Kristjánsson
27. Brandur Olsen
Athugasemdir
banner
banner
banner