„Þetta var mikilvægt mark fyrir okkur og mikilvæg þrjú stig," sagði Teemu Pukki, sóknarmaður Norwich, eftir 3-2 sigur á Englandsmeisturum Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Pukki gerði þriðja mark Norwich í upphafi seinni hálfleiks. Hann er kominn með sex mörk í fimm leikjum í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
Pukki gerði þriðja mark Norwich í upphafi seinni hálfleiks. Hann er kominn með sex mörk í fimm leikjum í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
„Það var mikilvægt fyrir okkur að ná í þrjú stig þar sem við vorum bara með þrjú stig fyrir leikinn. Þetta gefur okkur líka aukið sjálfstraust fyrir næstu leiki."
„Við sýndum í dag að við erum með gott lið. Það er ekki hægt að útiloka okkur."
„Við erum með mikil gæði innanborð - það er mikil ánægja fólgin í því að spila með þessum leikmönnum."
Athugasemdir