Fotbolti.net
14.09.20 - 10:39
Magnús Már Einarsson

Kórónuveirusmit trufluðu Tottenham fyrir tímabilið

Kórónuveirusmit trufluðu Tottenham fyrir tímabilið
Canon

Mynd: Getty Images

Jose Mourinho, stjóri Tottenham, segir að leikmenn liðsins hafi fengið kórónaveiruna á undirbúningstímabilinu og það hafi truflað undirbúning fyrir tímabilið.

Tottenham tapaði 1-0 gegn Everton á heimavelli í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í gær.

<i>„Harry Kane æfði einu sinni með okkur fyrir leikinn,"</I> agði Mourinho í gær.

<i>„Moussa Sissoko æfði nokkrum sinnum. Ég vil ekki taka alla leikmen fyrir en af mörgum ástæðum þá áttu margir leikmenn hjá okkur ekki alvöru undirbúningstímabil."</I>
„Við lentum í því að menn greindust með Covid. Við eigum rétt á að segja ekki hverjir það eru en það voru leikmenn. Þá voru fleiri leikmenn sem urðu að fara í sóttkví eftir að hafa umgengist jákvæðu leikmennina."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.