14.10.12 - 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Nigel Reo-Coker til Ipswich (Staðfest)

Nigel Reo-Coker.

Mynd: Getty Images

Nigel Reo-Coker.

Mynd: Getty Images
Enski miðjumaðurinn Nigel Reo-Coker hefur skrifað undir þriggja mánað samning við Ipswich Town.
Reo-Coker hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Bolton síðasta sumar, en áður hafði hann leikið með West Ham og Aston Villa.
Hann missti einungis af einum leik Bolton í Úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð áður en leiðir skildu þegar liðið féll í lok leiktíðarinnar. Síðan þá hefur þessi 28 ára gamli leikmaður verið að leita sér að félagi.
,,Ipswich er sofandi risi Í Championship deildinni. Þetta er stórt félag með frábæra sögu og hefð. Ég verð hér í þrjá mánuði og hlakka mikið til þess," sagði Reo-Coker.
Ipswich er sem stendur í næst neðsta sæti Championship-deildarinnar með einungis sjö stig úr tíu umferðum.