Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 14. október 2019 18:29
Brynjar Ingi Erluson
Michel Vorm aftur til Tottenham (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspur er búið að semja við hollenska markvörðinn Michel Vorm en hann gerir eins árs samning við félagið.

Vorm er 35 ára gamall en hefur verið án félags síðan í sumar er samningur hans hjá Tottenham rann út.

Hugo Lloris meiddist í tapi gegn Brighton á dögunum og ljóst að hann spilar ekki meira á þessu ári.

Vorm mun því berjast við Paulo Gazzaniga um markvarðarstöðuna en Vorm gerði samning út tímabilið.

Hann spilaði 47 leiki á fimm árum hjá Tottenham en hann hefur einnig spilað með Swansea. Den Bosch og Utrecht.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner