Fotbolti.net
14.10.21 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Fati í viðræðum við Barcelona

Ansu Fati

Ansu Fati

Canon

Mynd: EPA

Ansu Fati, leikmaður Barcelona, er í viðræðum við félagið um nýjan samning, en núverandi samningur rennur út næsta sumar.
Fati er 18 ára gamall og er talinn einn af framtíðarleikmönnum félagsins.

Samningur hans við félagið gildir til 2022 en Barcelona á möguleika á því að framlengja hann um tvö ár.

Marca segir frá því að Jorge Mendes, umboðsmaður Fati, sé í Barcelona að ræða við félagið um nýjan samning en það er efst í forgangsröðuninni að semja við leikmanninn.

Fati vill ekki yfirgefa Börsunga og því formsatriði að ganga frá viðræðunum en hann fékk tíuna af Lionel Messi eftir að argentínski snillingurinn yfirgaf félagið og samdi við Paris Saint-Germain í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.