14.11.26 - 20:54
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Arnar minnist Guðjóns - „Hafði mikil áhrif á mig“

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari Íslands.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Guðjón Þórðarson.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Guðjón Þórðarson lést aðfaranótt föstudags, 71 árs gamall. Guðjón þjálfaði meðal annars íslenska landsliðið með frábærum árangri. Núverandi landsliðsþjálfari, Arnar Gunnlaugsson, lék undir stjórn Guðjóns.
Arnar minntist Guðjóns í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag.

TENGT EFNI
Minnast Gauja Þórðar og senda samúðarkveðjur
„Fyrst og fremst mjög leiðinlegar fréttar. Ég vil votta fjölskyldu hans mínar dýpstu samúðarkveðjur. Við fréttum þetta fyrir leikinn í gær. Hann á stóran þátt í mínum fótboltaferli. Ég átti mjög góðar stundir með honum uppi á Skaga, með landsliðinu og hjá Stoke," sagði Arnar.
„Hann hafði mikil áhrif á mig, bæði sem leikmaður og sem þjálfari. Þetta er mikil goðsögn sem er fallin frá í íslenskum fótbolta. Vonandi náum við að minnast hans vel á mánudaginn og gefa kallinum góðan sigur."
Ísland mætir Lúxemborg á Laugardalsvelli á mánudag og má gera ráð fyrir því að Guðjóns verði minnst fyrir þann leik. Guðjón stýrði landsliðinu 1997-1999 og var þjálfari liðsins alla undankeppnina fyrir EM 2000, þar sem liðið náði fræknu jafntefli gegn Frakklandi í fyrsta leik þess eftir að hafa verið krýndir heimsmeistarar árið 1998.