Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður á X977 í dag milli 12 og 14, eins og venja er á laugardögum. Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson halda um stjórnartaumana.
Pálmi Rafn Pálmason, leikmaður og nýr íþróttastjóri KR, verður á línunni í upphafi þáttar.
Burðarefni þáttarins er enska hringborðið. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins um enska boltann, mætir með annað fjórðungsuppgjör tímabilsins.

Svo verður handboltahorn í lokin! Hafliði Breiðfjörð verður á línunni í beinni frá Búdapest og segir frá lífinu bak við tjöldin á mótinu en Hafliði er að mynda fyrir vefsíðuna handbolti.is.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.
Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.
Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna
Athugasemdir