Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
   mið 15. febrúar 2023 17:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Hugsa um hann þegar ég hugsa um þá hrauna yfir einhvern"
Logi Tómasson lék sína fyrstu deildarleiki fyrir Víking tímabilið 2018.
Logi Tómasson lék sína fyrstu deildarleiki fyrir Víking tímabilið 2018.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Komnir aðeins lengra í fræðunum en þeir yngstu.
Komnir aðeins lengra í fræðunum en þeir yngstu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Atli Hrafn Andrason, nú leikmaður HK, lék með Víkingi tímabilin 2018, 2019 og fyrri hluta tímabilsins 2020.

Hann var til viðtals hér á Fótbolti.net á dögunum og ræddi um það hvernig það kom til að hann gekk í raðir Víkings, tímann þar og svo viðskilnaðinn.

Á tíma sínum í Víkinni spilaði Atli og æfði með reynsluboltunum og Víkingsgoðsögnunum Kára Árnasyni og Sölva Geir Ottesen.

Á þessum tíma voru margir ungir leikmenn að spila með Víkingi, og eru sumir enn að spila með liðinu. Einn sem Atli nefndi sérstaklega er Logi Tómasson.

Hversu mikið lærir maður af svona leikmönnum og tókstu eftir þeim einhvern tímann hristandi hausinn yfir ykkur ungu strákunum?

„Mér fannst geggjað að hafa þá. Ég myndi segja að ég hafi verið í léttari kantinum fyrir eldri leikmennina á þeim tíma en maður sá alveg hvað þeir voru að verða geðveikir á sumum."

„Þeir hafa gert svo mikið fyrir þessa stráka, ég held að þeir fatti það ekki. Logi er orðinn besti bakvörður deildarinnar og ég sá á þeim tíma voru þeir að sparka aftan í hann og hrauna yfir hann."

„Ég held að þeir hafi gjörsamlega mótað Loga og hann er bara orðinn geggjaður leikmaður. Ég býst við því að hann fari út á næstunni."


Var Logi sá sem þeir hristu mest höfuðið yfir?

„Já, auðvitað. Logi var ungur og vitlaus á þessum tíma og auðvitað mikill karakter - sjarmerandi á sama tíma. Ég hugsa um hann þegar ég hugsa til baka um þá hrauna yfir einhvern," sagði Atli.

Hlusta má á viðtalið í heild sinni í spilaranum neðst.
Atli Hrafn: Stefnir alltaf hærra en þar sem þú ert
Athugasemdir
banner
banner