Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 15. mars 2020 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Steven Caulker búinn að leggja upp sex mörk frá jólum
Mynd: Getty Images
Enski miðvörðurinn Steven Caulker hefur verið að gera frábæra hluti frá komu sinni til Alanyaspor í Tyrklandi.

Caulker hefur verið hjá félaginu í rúmt ár og hefur leikið hlutverk í að breyta félaginu úr fallbaráttuliði í Evrópubaráttulið.

Alanyaspor er í fimmta sæti tyrknesku deildarinnar sem stendur, sex stigum frá Evrópusæti þegar aðeins átta umferðir eru eftir af tímabilinu.

Það hefur vakið athygli að Caulker er stoðsendingahæsti leikmaður liðsins en hann er búinn að gefa sex stoðsendingar frá jólum. Það gerir hann að stoðsendingahæsta Englendingi í efstu deild frá jólum, þar sem hann deilir toppsætinu með Jadon Sancho kantmanni Borussia Dortmund.

Meðal samherja Caulker hjá Alanyaspor eru Papiss Cisse og Juanfran.
Athugasemdir
banner
banner
banner