Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   sun 15. mars 2026 16:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Sesko innsiglaði sterkan sigur United - Vítaklúður og rautt á Selhurst Park
Benjamin Sesko innsiglaði sigur Man Utd
Benjamin Sesko innsiglaði sigur Man Utd
Mynd: EPA
Ross Barkley nýtti tækifærið en það dugði skammt
Ross Barkley nýtti tækifærið en það dugði skammt
Mynd: EPA
Man Utd vann gríðarlega sterkan sigur á Aston Villa á Old Trafford í baráttunni um Meistaradeildarsæti í úrvalsdeildinni í dag. Emiliano Martinez varði frábærlega skalla frá Amad Diallo eftir rúmlega tuttugu mínútna leik.

Diogo Dalot fékk síðan gullið tækifæri til að koma Man Utd yfir undir lok fyrri hálfleiks en skaut hátt yfir úr góðu færi.

Man Utd náði forystunni snemma í seinni hálfleik þegar Casemiro skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu frá Bruno Fernandes. Þetta var sjötta markið hans eftir fast leikatriði en enginn hefur skorað jafn mörg mörk eftir fast leikariði í deildinni á tímabilinu.

Aston Villa jafnaði metin um tíu mínútum síðar. Ross Barkley kom boltanum í netið en VAR skoðaði atvikið þar sem Amadou Onana fékk boltann mögulega í höndina og var í rangstöðu en markið var að lokum dæmt gott og gilt.

Tammy Abraham fékk færi til að koma Aston Villa yfir en hann náði ekki að taka vel á móti boltanum og Dalot kom boltanum frá.

Man Utd refsaði stuttu síðar þegar Matheus Cunha slapp í gegn og kom liðinu aftur yfir. Það var síðan Benjamin Sesko sem innsiglaði sigurinn eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

Aston Villa hefði getað klórað í bakkann í blálokin en Douglas Luiz og Aleix Garcia flæktust fyrir hvor öðrum fyrir opnu marki og þetta rann út í sandinn.

Það var mikið um að vera á Selhurst Park þar sem Leeds var í heimsókn hjá Crystal Palace.

Gestirnir fengu tækifæri til að komast yfir á lokaandartökum fyrri hálfleiks þegar vítaspyrna var dæmd en Dominic Calvert-Lewin fór illa að ráði sínu og skaut framhjá.

Stuttu síðar kom upp furðulegt atvik þegar Gabriel Gudmundsson fékk sitt annað gula spjald. Thomas Bramall, dómari leiksins, virtist ekki átta sig á því að hann væri að gefa honum annað gula spjaldið og eftir mótmæli Palace manna lyfti hann loksins rauða spjaldinu.

Crystal Palace réði lögum og lofum í seinni hálfleik en markalaust jafntefli var niðurstaðan.

Það var einnig markalaust þegar Nottingham Forest fékk Fulham í heimsókn. Dan Ndoye, sóknarmaður Forest, kom boltanum í netið eftir rúmlega klukkutíma leik en markið var dæmt af vegna rangstöðu.

Sjáðu úrslit dagsins og stöðutöfluna hér fyrir neðan

Manchester Utd 3 - 1 Aston Villa
1-0 Casemiro ('53 )
1-1 Ross Barkley ('64 )
2-1 Matheus Cunha ('71 )
3-1 Benjamin Sesko ('81 )

Crystal Palace 0 - 0 Leeds
0-0 Dominic Calvert-Lewin ('45 , Misnotað víti)
Rautt spjald: Gabriel Gudmundsson, Leeds ('45)

Nott. Forest 0 - 0 Fulham
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
2 Man City 32 20 7 5 65 29 +36 67
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Brighton 34 13 11 10 46 39 +7 50
7 Chelsea 34 13 9 12 53 43 +10 48
8 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
9 Bournemouth 33 11 15 7 50 50 0 48
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 42 49 -7 39
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 33 4 8 21 34 67 -33 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner