Real Madrid heimsækir Bayern Munchen í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Fyrri leiknum lauk með 2-1 sigri Bayern í Madrid.
Þegar Real Madrid er undir í einvígi í Meistaradeildinni fara leikmenn, þjálfarar og stuðningsmenn að tala um Remontada sem er spænska orðið yfir endurkomu.
Þegar Real Madrid er undir í einvígi í Meistaradeildinni fara leikmenn, þjálfarar og stuðningsmenn að tala um Remontada sem er spænska orðið yfir endurkomu.
„Mér sýnist Real Madrid vera í þessum þróunarfasa núna, en þetta er samt eitt besta lið Evrópu. Ég sé samt ekki þessar fréttir um endurkomu (s. Remontada) sem eitthvað einstakt dæmi og þessar sögur eru ekki sannleikurinn. Þetta eru sögur annarra félaga á borð við Barcelona, Liverpool og Bayern München. Öll félög geta sagt sögur af stórkostlegum afrekum.“
„Ég trúi Real Madrid fullkomlega þegar þeir segjast geta komið til baka, en ég vil líka vinna leikinn. Það mun ekkert áhrif á mig fyrir þennan leik,“ sagði Vincent Kompany, stjóri Bayern.
Real Madrid er sigursælasta lið keppninnar en liðið er með 15 titla. Bayern hefur unnið hana sex siinnum. Alvaro Arbeloa, skaut á Kompany, þegar hann var spurður út í ummæli Belgans.
„Ég veit ekki hversu mörg lið geta sagt að þau hafi Meistaradeildina 15 sinnum. Leikmennirnir og félagið trúir. Enginn einasti stuðningsmaður Real Madrid hefur sagt við mig að hann hafi ekki trú á þessu. Real Madrid mun mæta og gefa allt í þetta," sagði Arbeloa.


