Það er mikil reiði í herbúðum Real Madrid eftir að liðið féll úr leik í Meistaradeildinni eftir 4-3 tap gegn Bayern Munchen í kvöld.
Real Madrid var 3-2 yfir í hálfleik en Eduardo Camavinga fékk rautt spjald fyrir að tefja það að Bayern gæti tekið aukaspyrnu undir lok leiksins. Í kjölfarið skoruðu Luis Diaz og Michael Olise og innsigluðu sigur Bayern.

Alvaro Arbeloa mætti í viðtal eftir leikinn og sagði að dómarinn hafi eyðilagt leikinn. Jude Bellingham og Antonio Rudiger voru beðnir um viðbrögð en vildu ekki mæta í viðtöl.
Þeir löbbuðu framhjá fréttamönnum á leiðinni í liðsrútuna en Bellingham sagði einfaldlega: „Þetta er brandari."
Þegar Rudiger var beðinn um að tjá sig sagði hann: „Það er betra að ég tjái mig ekki í kvöld."
???????? Real Madrid players, furious with the referee — and red card for Arda Güler.@lejournaldureal ???? pic.twitter.com/TEuj9HDynZ
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) April 15, 2026