Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 15. maí 2019 10:25
Arnar Daði Arnarsson
Anna Young í ÍBV (Staðfest)
ÍBV hefur fengið liðsstyrk.
ÍBV hefur fengið liðsstyrk.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Kvennalið ÍBV í Pepsi Max-deildinni hefur fengið liðstyrk. Anna Young hefur fengið félagaskipti í ÍBV og er orðin lögleg með liðinu fyrir 4. umferðina þegar ÍBV mætir KR í Frostaskjólinu.

Anna Young kemur frá Englandi og er fædd árið 1995. Hún getur spilað bæði sem varnarmaður og einnig getur hún leyst miðjustöðuna.

ÍBV er með þrjú stig að loknum fyrstu þremur umferðum deildarinnar. Eftir sigur á Keflavík í 2. umferðinni 2-0 tapaði liðið gegn Þór/KA 1-3 í 3. umferðinni.

Anna Young er komin í Draumaliðsdeildina.

Athugasemdir
banner
banner