Afturelding hefur lánað sóknarmanninn Elvar Inga Vignisson í Reyni Sandgerði.
Elvar Ingi framlengdi við Aftureldingu eftir síðustu leiktið en mun spila með Reyni í 3. deildinni á næstunni. Hann er góð viðbót við lið Reynis sem er spáð góðu gengi í sumar.
Elvar Ingi skoraði sex mörk í 10 leikjum fyrir Aftureldingu er liðið fór upp úr 2. deildinni í fyrra.
Hann meiddist í leik í ágúst í fyrra og hefur ekkert spilað að undanförnu.
Elvar Ingi er 24 ára. Auk þess að spila með Aftureldingu hefur hann einnig spilað með Fjarðabyggð, Selfossi og ÍBV á sínum leikmannaferli.
Athugasemdir