Kári á Akranesi var að liðsstyrk fyrir átökin í sumar. Indriði Áki Þorláksson var að félagaskipti yfir í Kára.
Indriði Áki lék í fyrra með Haukum í Inkasso-deildinni og kom hann við sögu í 16 deildarleikjum og skoraði hann tvö mörk.
Hann hefur einnig leikið með Fram, Keflavík, Leikni R. og Val á sínum leikmannaferli.
Indriði Áki er 23 ára gamall og leikur yfirleitt sem miðjumaður.
Kári er á toppi 2. deildar eftir fyrstu tvær umferðirnar í 2. deild. Liðið er með fjögur stig.
Kára er spáð 6. sæti í 2. deildinni í sumar.
Athugasemdir