15.05.20 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Bayern í samstarf með kínverska TikTok

Bayern er með fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar.

Mynd: Getty Images

Bayern er með fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar.

Mynd: Getty Images
FC Bayern München er búið að tilkynna samstarf sitt við samfélagsmiðilinn Douyin, sem er kínverska útgáfan af TikTok.
Douyin hefur aldrei áður verið í samstarfi með knattspyrnufélagi en ákvað að nýta tækifærið sem býðst með endurræsingu þýsku deildarinnar. Hún verður fyrsta stóra knattspyrnudeild Evrópu til að fara aftur af stað þegar flautað verður til leiks núna um helgina.
Búist er við að hundruðir milljóna muni fylgjast með þýsku deildinni þar sem enginn hágæða fótbolti hefur verið spilaður nokkurs staðar í heiminum undanfarnar vikur.
Með þessu samkomulagi vonast Bayern til að auka enn frekar við stuðningsmannafjölda sinn í Kína.
„Við erum spennt fyrir samstarfinu með Douyin því þetta er fyrirtæki sem veitir okkur fullkomið tækifæri til að tengjast stuðningsmönnum okkar á nánari hátt. Samfélagsmiðlar eru gríðarlega mikilvægir í miðjum heimsfaraldri og munu ekki hætta að vera það," sagði Jörg Wacker, einn stjórnenda FC Bayern.

Bundesliga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Bayern | 8 | +19 | 18 |
| 2 | Dortmund | 8 | +8 | 18 |
| 3 | Freiburg | 8 | +8 | 16 |
| 4 | RB Leipzig | 8 | +11 | 15 |
| 5 | Werder | 8 | +3 | 15 |
| 6 | Leverkusen | 8 | +2 | 13 |
| 7 | Elversberg | 8 | 0 | 13 |
| 8 | Mainz | 8 | 0 | 10 |
| 9 | Augsburg | 8 | +3 | 9 |
| 10 | Stuttgart | 8 | -1 | 9 |
| 11 | Hoffenheim | 8 | -2 | 9 |
| 12 | Paderborn | 8 | -3 | 9 |
| 13 | Hamburger | 7 | -10 | 9 |
| 14 | Köln | 7 | -3 | 8 |
| 15 | Frankfurt | 7 | -7 | 8 |
| 16 | Schalke 04 | 8 | -5 | 6 |
| 17 | Union Berlin | 7 | -12 | 6 |
| 18 | Gladbach | 8 | -11 | 4 |