Willum Þór Willumsson reyndist hetja BATE Borisov í kvöld sem spilaði við Rukh Brest í Hvíta-Rússlandi.
Willum byrjaði leikinn á varamannabekknum en kom inná þegar 23 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.
Staðan var 2-1 fyriur Rukh Brest er Willum kom inná en stuttu eftir hans innkomu jafnaði BATE metin.
Á 83. mínútu skoraði Willum svo þriðja mark BATE sem reyndist sigurmarkið í leiknum.
BATE situr í þriðja sæti deildarinnar í Hvíta-Rússlandi og er sjö stigum á eftir toppliði Shakhtyor Soligorsk.
Athugasemdir