lau 15. maí 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Lautaro fer ekki frá Inter - „Ég var nálægt því að fara til Barcelona"
Lautaro Martinez verður áfram á Ítalíu
Lautaro Martinez verður áfram á Ítalíu
Mynd: EPA
Argentínski framherjinn Lautaro Martínez fer ekki frá Inter í sumar en hann staðfesti þetta í viðtali við Sky Italia í gær.

Martínez er 23 ára gamall og hefur verið einn heitasti framherjinn í ítölsku deildinni síðustu tvö tímabilin.

Hann og Romelu Lukaku hafa myndað skemmtilegt framherjapar en þeir hjálpuðu Inter að vinna deildin í ár.

Martínez var nálægt því að ganga í raðir Barcelona á síðasta ári og nú hefur hann verið orðaður aftur við Börsunga sem og Real Madrid en hann er ekki á förum.

„Ég er mjög ánægður hjá Inter og er ekki að fara frá félaginu. Við munum leysa þessar samningamálin," sagði Martínez.

„Ég var mjög nálægt því að fara til Barcelona fyrir ári síðan. Ég ræddi við Lionel Messi en ákvað að vera áfram hjá Inter," sagði hann í lokin.

Barcelona mun að öllum líkindum ganga frá samningum við Sergio Aguero á næstu dögum en samningur hans við Manchester City rennur út í sumar og hefur hann tilkynnt að hann yfirgefi félagið eftir tímabilið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner