Tindastóll og Víkingur R. eru komin áfram í Mjólkurbikar kvenna eftir sigra í dag.
Tindastóll tók á móti ÍR og hafði betur í síðari hálfleik eftir markalausan fyrri.
Aldís María Jóhannsdóttir og Hugrún Pálsdóttir sáu um markaskorunina.
Víkingur R. hafði þá betur gegn Grindavík í hörkuleik þar sem Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir tók forystuna snemma leiks fyrir Víkinga.
Mimi Eiden jafnaði í síðari hálfleik en korteri síðar gerði Christabel Oduro sigurmarkið og skaut Víkingi áfram í næstu umferð Mjólkurbikarsins.
Tindastóll 2 - 0 ÍR
1-0 Aldís María Jóhannsdóttir ('48)
2-0 Hugrún Pálsdóttir ('76)
Grindavík 1 - 2 Víkingur R.
0-1 Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir ('4)
1-1 Mimi Eiden ('64)
1-2 Christabel Oduro ('79)
Athugasemdir