Reynald Pedros, þjálfari kvennaliðs Lyon, hefur ákveðið að stíga til hliðar og mun hann ekki halda áfram með liðið.
Í yfirlýsingu sagði félagið að um sameiginlega ákvörðun hefði verið að ræða. Jafnframt segir í yfirlýsingunni að þjálfarabreytingar muni hjálpa liðinu að þróast áfram og stefna í rétta átt.
Pedros tók við liðinu 2017 og vann Meistaradeildina og frönsku úrvalsdeildina á sínu fyrsta tímabili. Hann gerði það sama á síðasta tímabili og bætti við franska bikarnum.
Lyon vann 4-1 sigur á Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð þar sem hin norska Ada Hegerberg skoraði þrennu.
Nú mun Lyon reyna að finna nýjan þjálfara sem getur haldið liðinu á toppnum í kvennaboltanum.
Sjá einnig:
Besta íþróttalið sem fyrirfinnst?
Athugasemdir