Heimild: Football Italia
Luis Suarez leikmaður Barcelona segist hafa verið í afneitun eftir að hafa bitið Giorgio Chiellini í öxlina.
Atvikið átti sér stað í leik Úrúgvæ og Ítalíu á HM 2014. Eftirmálinn hefði líklega verið allt annar með tilveru VAR en Suarez komst upp með að bíta varnarmanninn í leiknum.
„Konan mín spurði hvað gerðist og ég sagði að við höfðum lent í samstuði, ég samþykkti ekki raunveruleikann, ég var í afneitun." sagði Suarez í viðtali við Fox Sports.
Þetta var ekki í fyrsta sinn sem Suarez náðist á mynd að bíta einhvern en eftir þetta skipti fékk en fjögra mánuða bann frá fótbolta.
„Ég leitaði mér sálfræðilegar hjálpa og það hjálpaði mér að átta mig á mistökum mínum. Það var samt komið ómannlega fram við mig og þegar ég fór til Barcelona vildu þeir ekki tilkynna mig á miðlum þeirra," sagði Suarez. „ég hélt að ferillinn minn væri búinn."
Athugasemdir