Valgeir samningslaus eftir fall í Þýskalandi - „Veit ekki hvort að félög viti það“
Auglýsing

Samningslaus eftir að hafa fallið með Dusseldorf.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þegar ég mæti til baka næ ég ekki taktinum, dett út vegna meiðsla og kem til baka. Þetta var smá hringekja.“

Valgeir Lunddal er samningslaus eftir að lið hans, Fortuna Dusseldorf, féll niður úr Bundesliga 2.
Valgeir gekk til liðs við Dusseldorf fyrir tveimur árum og var samningur hans upphaflega í gildi til ársins 2028 en ákvæði var í samningnum um að ef liðið skyldi falla myndi samningurinn falla úr gildi.
Fótbolti.net ræddi við Valgeir fyrr í dag og spurði hann út í nýafstaðið tímabil og næstu skref.

„Það var ákvæði í samningnum að ef við föllum niður um deild að þá yrði ég samningslaus. Það er skellur en svona er þetta,“ sagði Valgeir og var spurður út í næstu skref.
„Það er einhver áhugi og eitthvað svona. Þetta skeði nýlega, kannski bara tvær vikur síðan. Ég veit ekki hvort lið viti hvort ég sé samningslaus. En núna er bara smá óvissa.“
Líður vel í Þýskalandi
Valgeir gekk til liðs við Dusseldorf frá sænska liðinu Hacken sumarið 2024. Aðspurður um hvort hann eigi sér land á óskalistanum segist Valgeir vera opinn fyrir öllu.
„Ég er ekki með einhvern draumaáfangastað, ég er frekar opinn fyrir öllu. Þýskaland var auðvitað geggjaður staður. Að vera í B-deild en samt eru 50 þúsund manns að mæta á völlinn, það er eitthvað sérstakt við það.“
Kaótískt tímabil að baki
Á nýloknu tímabili spilaði Valgeir mun minna en óskir stóðu til en hann meiddist fyrir áramót og var frá í nokkra mánuði. Valgeir segir tímabilið hafa einkennst af kaótík.
„Ég byrjaði tímabilið á bekknum, vann mig síðan inn í liðið og átti þrjá, fjóra góða leiki í röð - lagði upp tvö mörk og við að vinna. Síðan meiðist ég í fætinum og er frá í rúma þrjá mánuði.
Síðan eru þjálfara- og stjórnarbreytingar. Þetta var mjög kaótískt tímabil. Þegar ég mæti til baka næ ég ekki taktinum, dett út vegna meiðsla og kem til baka. Þetta var smá hringekja. Núna fæ ég góðan tíma til að hugsa um sjálfan mig og styrkja mig,“ sagði Valgeir að lokum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan en þar ræðir Valgeir nánar um tímabilið í Þýskalandi og landsliðið.