Fotbolti.net
15.06.26 - 19:28
Brynjar Ingi Erluson

De la Fuente: Munið að mótið er mjög langt

De la Fuente á hliðarlínunni

De la Fuente á hliðarlínunni

Canon

Mynd: EPA

„Það vantaði ferskleika og fágun. Við þurfum að halda áfram að vinna að markmiðum okkar, bæta færanýtinguna og vera skilvirkari. Þetta eru leikirnir þar sem þú skapar þér helling af færum, en það vantaði skerpu,“ sagði Luis de la Fuente, þjálfari spænska landsliðsins eftir óvænt markalaust jafntefli liðsins gegn nýliðum Grænhöfðaeyja á HM í dag.
HM: Evrópumeistararnir fundu ekki leið framhjá fertugum Vozinha
TENGT EFNI

HM: Evrópumeistararnir fundu ekki leið framhjá fertugum Vozinha

Spánverjar eru taldir sigurstranglegir á mótinu. Fyrir tveimur árum vann þjóðin Evrópumótið og ætlar sér stóra hluti í ár, en mótið fór ekkert sérstaklega vel af stað.

Spánverjar reyndu og reyndu en náðu ekki að brjóta Grænhöfðaeyjar á bak aftur, sem fögnuðu sögulegu stigi á sínu fyrsta heimsmeistaramóti.

De la Fuente var ánægður með ýmislegt í leik sinna manna en sagði að leikir sem þessir gætu verið erfiðir.

„Það vantaði ferskleika og fágun. Við þurfum að halda áfram að vinna að markmiðum okkar, bæta færanýtinguna og vera skilvirkari. Þetta eru leikirnir þar sem þú skapar þér helling af færum, en það vantaði skerpu.“

„Þetta er mjög skipulagt lið. Frá fyrsta augnablikinu sáum við hvernig þeir sátu djúpt með alla tíu útileikmennina fyrir framan vítateiginn. Það er mjög erfitt að skapa pláss í svona stöðu og á köflum vantaði aðeins meiri boltahreyfingu til að koma andstæðingnum úr jafnvægi. Þegar boltinn vill ekki fara inn, þá fer hann ekki inn.“

„Það voru færi, skot og vilji til að ganga frá leiknum snemma. Við verðum að halda áfram á sömu braut. Við vissum að þetta yrði erfiður leikur og það er ótrúlega erfitt að vinna þá. En munið eitt: Heimsmeistaramótið er mjög langt,“ sagði De la Fuente.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.