Fotbolti.net
Tvær gjörólíkar leiðir á toppinn

15.06.26

Tvær gjörólíkar leiðir á toppinn

EFTIR GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

Þegar Víkingur og KR mætast í stórleik Bestu deildarinnar annað kvöld verður það ekki aðeins viðureign tveggja efstu liða deildarinnar. Þetta verður líka áhugaverð taktísk rimma tveggja liða sem nálgast fótboltann með ólíkum hætti.

Á annarri hliðinni ertu með Víking, ríkjandi Íslandsmeistara, sem hafa unnið níu deildarleiki í röð og byggt upp lið sem einkennist af aga, skipulagi og skilvirkni. Á hinni hliðinni er KR, lið sem var hársbreidd frá falli á síðasta tímabili en er nú í toppbaráttu og að margra mati skemmtilegasta lið landsins til að horfa á spila.

Aðeins þrjú stig skilja liðin að á toppnum en hér erum við með tvær ólíkar sögur.

Til að greina betur hvað bíður okkar á Víkingsvelli ræddi Fótbolti.net við tvo þjálfara sem þekkja liðin ágætlega: Þorlák Árnason, fyrrverandi þjálfara ÍBV, og Halldór Árnason, fyrrverandi þjálfara Breiðabliks.

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.