Sjáðu frábært mark Egypta: Fagnaði að hætti Conor McGregor

Emam Ashour skoraði eftir sendingu frá Mohamed Salah

Mynd: EPA

Emam Ashour skoraði eftir sendingu frá Mohamed Salah

Mynd: EPA
Egyptar leiða gegn Belgum, 1-0, á heimsmeistaramótinu en markið gerði Emam Ashour, leikmaður Al Ahly í heimalandinu.
Markið kom á 19. mínútu leiksins. Mohamed Salah, aðalstjarna Egypta, fékk boltann hægra megin og fann Ashour aleinan fyrir utan teiginn.
Hann tók við boltanum og setti boltann á hægri fótinn áður en hann negldi honum niðri í vinstra hornið. Stórkostlegt mark hjá Ashour sem fagnaði að hætti bardagakappans Conor McGregor áður en honum var fleygt í grasið við mikinn fögnuð.
Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.
Sjáðu markið hér

Ashour just scored for Egypt ???????? against Belgium ???????? in the World Cup and he just pulled out the Conor McGregor @TheNotoriousMMA celebration ???? ???? pic.twitter.com/qzOQYnh7tW
— RO Sport Memorabilia (@_ROMemorabilia_) June 15, 2026
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!