Fotbolti.net
15.07.20 - 18:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Byrjunarlið Arsenal og Liverpool: Auba á bekknum og firnasterkt lið Liverpool

Aubameyang er á bekknum.

Aubameyang er á bekknum.

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool heimsækir Arsenal í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og er í beinni útsendingu á Síminni Sport.

Liverpool gerði 1-1 jafntefli um liðna helgi og Arsenal tapaði 2-1 gegn Tottenham. Liverpool er löngu orðið Englandsmeistari og Arsenal er í 10. sætinu. Fyrri leikur liðanna í vetur endaði með 3-1 sigur Liverpool. Joel Matip skoraði eitt og Mo Salah tvö fyrir Liverpool áður en Lucas Torreira minnkaði muninn.
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, gerir fimm breytingar frá tapinu gegn Tottenham. Arteta virðist halda sig við fimma manna vörnina. Rob Holding, Reiss Nelson og Cedric Soares koma inn í vörnina, Lucas Torreira kemur inn á miðjuna og Bukayo Saka í framlínuna. Stóru tíðindin eru þau að Pierre-Emerick Aubameyang byrjar á bekknum. Þetta er í fyrsta sinn sem Aubameyang er á bekknum undir stjórn Mikel Arteta.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, gerir tvær breytingar frá jafnteflinu gegn Burnley. Trent Alexander-Arnold og Alex Oxlade-Chamberlain koma inn í liðið.

Byrjunarlið Arsenal: Martinez, Holding, David Luiz, Cedric, Torreira, Xhaka, Tierney, Pepe, Lacazette, Saka, Nelson

(Varamenn: Aubameyang, Bellerin, Ceballos, Kolasinac, Macey, Maitland, Mustafi, Sokratis, Willock)

Byrjunarlið Liverpool: Alisson, Alexander-Arnold, Gomez, Van Dijk, Robertson, Fabinho, Wijnaldum, Oxlade-Chamberlain, Mane, Salah, Firmino

(Varamenn: Adrian, Elliott, Jones, Keita, Lovren, Minamino, Origi, Shaqiri, Williams)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.