Fotbolti.net
15.08.12 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Arouna Kone til Wigan (Staðfest)

Arouna Kone til Wigan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Wigan Athletic hefur fest kaup á Arouna Kone frá Levante á Spáni.
Kone, sem er 28 ára gamall framherji, skoraði 15 mörk í 34 leikjum fyrir Levante á síðustu leiktíð, en liðið hafnaði í sjötta sæti deildarinnar og kom rækilega á óvart.

Wigan festi kaup á Kone í gær, en hann gerði þriggja ára samning. Þetta kemur á óvart í ljósi þess að Levante keypti hann í sumar frá Sevilla, en hann var á láni hjá Levante á síðasta tímabili frá Sevilla.

Roberto Martinez, stjóri Wigan, hefur verið á höttunum á eftir sóknarmanni síðan Hugo Rodallega fór frá félaginu a frjálsri sölu til Fulham í sumar en hann fékk einnig Ryo Miaychi frá Arsenal á láni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.