Fotbolti.net
15.08.19 - 09:25
Arnar Helgi Magnússon

Hólmfríður: Ástæða fyrir því að Selfoss og KR eru þarna

Hólmfríður: Ástæða fyrir því að Selfoss og KR eru þarna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Selfoss og KR mætast í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna á laugardag. Flautað verður til leiks á Laugardalsvelli klukkan 17:00.

Hólmfríður Magnúsdóttir, leikmaður Selfoss og Alfreð Elías Jóhansson, þjálfari liðsins, eru gestir í nýjasta þætti Selfoss hlaðvarpsins en þar ræða þau úrslitaleikinn sem að framundan er.
„KR er með frábært lið og þær hafa verið að spila betur og betur með hverjum leiknum. Einnig eru þær með frábæra einstaklinga í Katríni Ómars, Betsy, Gummu og nú Gloria. Þetta verður hörkuleikur og bara 50/50," segir Hólmfríður.

„Við þurfum að fara í þennan leik eins og alla aðra, alveg brjálaðar og vinna fyrir þessu, það er enginn leikur gefins. Það er ástæða fyrir því að KR og Selfoss eru þarna."

Hólmfríður mætir sínu gamla liði í úrslitaleiknum en hún á að baki fjöldan allan af leikjum fyrir KR.

„Það verður gaman fyrir Hólmfríði að mæta sínu gamla liði. Hún er búin að spila nokkra leiki fyrir KR og á vinkonur í þessu liði og þetta verður ekki leiðinlegt fyrir hana," sagði Alfreð Elías, þjálfari Selfoss.
Hólmfríður: Ástæða fyrir því að Selfoss og KR eru þarna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.