Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 15. ágúst 2020 15:17
Benjamín Þórðarson
Byrjunarlið ÍA og Fylkis: Ólafur Ingi byrjar hjá Fylki
Ólafur Ingi kemur úr banni
Ólafur Ingi kemur úr banni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stefán Teitur er á sínum stað
Stefán Teitur er á sínum stað
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Kl 16:00 hefst leikur ÍA og Fylkis á Norðurálsvellinum á Akranesi. Þetta er fyrsti leikur liðanna eftir tveggja vikna hlé vegna Covid-19. Byrjunarðliðin eru klár og eru þó nokkrar breytingar.

Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari ÍA gerir þrjár breytingar á sínu liði frá tapinu gegn Breiðablik í síðustu umferð. Út fara Viktor Jónsson sem er meiddur, Aron Kristófer Lárusson og Marcus Johannsson. Í þeirra stað koma Benjamin Mehic, Ólafur Valur Valdimarsson og Hlynur Snævar Jónssson.

Atli Sveinn Þórarinsson þjálfari Fylkis gerir hins vegar fjórar breytingar á sínu liði frá sigrinum gegn HK. Út fara Arnar Darri Pétursson(m), Sam Hewson, Daði Ólafsson og Hákon Ingi Jónsson. Þeir sem koma inn eru Aron Snær Friðriksson(m), Ólafur Ingi Skúlason, Ragnar Bragi Sveinsson og Arnór Borg Guðjohnsen.

Byrjunarlið ÍA

12. Árni Snær Ólafsson (m)
3. Óttar Bjarni Guðmundsson
5. Benjamín Mehic
7. Sindri Snær Magnússon
8. Hallur Flosason
10. Tryggvi Hrafn Haraldsson
14. Ólafur Valur Valdimarsson
16. Brynjar Snær Pálsson
18. Stefán Teitur Þórðarson
22. Steinar Þorsteinsson
24. Hlynur Sævar Jónsson

Byrjunarlið Fylkis

1. Aron Snær Friðriksson (m)
2. Ásgeir Eyþórsson
5. Orri Sveinn Stefánsson
8. Ragnar Bragi Sveinsson (f)
11. Valdimar Þór Ingimundarson
13. Arnór Gauti Ragnarsson
16. Ólafur Ingi Skúlason
18. Nikulás Val Gunnarsson
20. Arnar Sveinn Geirsson
23. Arnór Borg Guðjohnsen
24. Djair Parfitt-Williams

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner