Fotbolti.net
15.09.17 - 19:00
Magnús Már Einarsson

Kolo Toure í þjálfaralið Celtic (Staðfest)

Kolo Toure og Brendan Rodgers stjóri Celtic.

Kolo Toure og Brendan Rodgers stjóri Celtic.

Canon

Mynd: Getty Images

Kolo Toure hefur verið ráðinn í þjálfaralið Celtic en skoska félagið staðfesti þetta í dag. Hinn 36 ára gamli Toure virðist því hafa ákveðið að leggja skóna á hilluna.

Toure spilaði 17 leiki með Celtic á síðasta tímabili eftir að hafa komið frítt til félagsins frá Liverpool. Hann fékk ekki nýjan samning sem leikmaður hjá Celtic í sumar.

Toure er frá Fílabeinsströndinni en hann lék lengi á Englandi með Arsenal, Manchester City og Liverpool.
Í vetur mun Toure vera í þjálfaraliði Celtic og aðstoða meðal annars Brendan Rodgers knattspyrnustjóra liðsins. Þeir voru einnig á sama tíma hjá Liverpool á sínum tíma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.