15.09.17 - 14:00
Magnús Már Einarsson
Zaneta Wyne frá Þór/KA í Sunderland (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bandaríski miðjumaðurinn Zaneta Wyne er farin frá Þór/KA en hún hefur samið við Sunderland í ensku úrvalsdeildinni.
Zaneta verður því ekki með Þór/KA í síðustu tveimur umferðunum í Pepsi-deildinni.
Í sumar hefur Zaneta spilað fimmtán af sextán leikjum Þórs/KA í Pepsi-deildinni en hún kom til félagsins í júlí í fyrra.

Þór/KA er með pálmann í höndunum í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn en liðið þarf einn sigur í síðustu tveimur leikjunum til að gulltryggja titilinn.
Þór/KA mætir Grindavík á útivelli laugardaginn 23. september áður en liðið leikur gegn FH á heimavelli föstudaginn 29. september.
Þór/KA mætir Grindavík á útivelli laugardaginn 23. september áður en liðið leikur gegn FH á heimavelli föstudaginn 29. september.
Z is leaving us for the English Premier League team Sunderland. Wishing you all the best and thanks for everything with Þór/KA. #fotboltinet pic.twitter.com/sWEWDtszun
— Þór/KA (@thorkastelpur) September 15, 2017