Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 15. september 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Hörður Björgvin: Tileinka dóttur minni markið
Mynd: Getty Images
Hörður Björgvin Magnússon, varnarmaður CSKA Moskvu, skoraði í sigri gegn Spartak Moskvu í grannaslag í rússnesku úrvalsdeildinni um helgina.

Hörður varð faðir í fyrsta skipti fyrr á þessu ári og hann tileinkaði markið dóttur sinni.

„Þetta var risa sigur fyrir okkur. Ég er ánægður með að geta unnið þennan leik fyrir stuðningsmennina og fólkið sem gat ekki komið á völlinn út af reglum sem eru í gangi," sagði Hörður í viðtali eftir leik.

„Ég vil tileinka dóttur minni markið en hún er heima (á Íslandi). Ég hlakka til að koma með fjölskylduna til Moskvu."

Hér að neðan má sjá viðtalið í heild sinni.


Athugasemdir
banner
banner