Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 15. september 2020 08:00
Aksentije Milisic
Vidal sagður hafa samþykkt að ganga í raðir Inter
Mynd: Getty Images
Arturo Vidal, miðjumaður Barcelona, er sagður hafa samþykkt það að ganga í raðir Inter frá Barcelona.

Vidal á enn ár eftir af samningi sínum hjá Barcelona en miðlar á Spáni greina frá því að Inter mun borga hálfa milljón evra fyrir Vidal auk bónusa.

Þá er sagt frá því að Barcelona muni borga hluta af launum Vidal þangað til samningur hans rennur út á næsta ári. Talið er að Vidal muni fljúga til Mílanó borgar seinna í dag og fara í læknisskoðun í kjölfarið.

Antonio Conte, þjálfari Inter, hefur reynt að fá Vidal til liðsins síðan hann tók við liðinu fyrir ári síðan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner