Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 15. september 2021 08:57
Elvar Geir Magnússon
Gummi Tóta var frábær - Inter Miami á hraðri uppleið
Guðmundur Þórarinsson er að spila vel í Bandaríkjunum.
Guðmundur Þórarinsson er að spila vel í Bandaríkjunum.
Mynd: Getty Images
Landsliðsmaðurinn Guðmundur Þórarinsson átti frábæran leik fyrir New York City í 3-3 jafntefli gegn FC Dallas í bandarísku MLS-deildinni í nótt.

Guðmundur fær mjög góða dóma fyrir sína frammistöðu og sagðist einn stuðningsmaður á Twitter ætla að spila Jaja Ding Dong lagið honum til heiðurs eftir leikinn.

Í kjölfarið á fyrirgjöf Guðmundar komst New York í 2-1 í leiknum og svo átti hann öfluga stoðsendingu þegar Talles Magno endurheimti forystuna fyrir New York í 3-2. Dallas náði hinsvegar aftur að jafna og 3-3 urðu lokatölur.

New York er í fjórða sæti austurdeildar MLS-deildarinnar, sæti fyrir ofan Inter Miami sem er í eigu David Beckham.

Eftir hrikalega byrjun Inter Miami á tímabilinu hefur Phil Neville náð að rétta skútuna við. Liðið vann 1-0 sigur gegn Toronto í nótt þar sem eina mark leiksins kom úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Inter hefur unnið sex af síðustu átta leikjum.


Athugasemdir
banner
banner