Portúgalska ofurstjarnan Cristiano Ronaldo var á þriðjudag greindur með kórónuveiruna á meðan hann var í landsliðsverkefni með Portúgal.
Ronaldo spilaði með Portúgal gegn Frakklandi í markalausu jafntefli síðastliðinn sunnudag.
Ronaldo mun snúa aftur til Ítalíu og klára einangrun sína þar, en hann er auðvitað leikmaður Ítalíumeistara Juventus.
Hann mun missa af næstu leikjum Juventus, en þessi magnaði fótboltamaður er án einkenna. Giorgio Chiellini, liðsfélagi Ronaldo hjá Juventus, segir að Portúgalanum líði vel.
„Ronaldo? Ég hringdi í hann, það var allt í góðu með hann. Hann var í sólbaði," sagði Chiellini.
Athugasemdir