15.11.26 - 22:10
Ívan Guðjón Baldursson
Rice: Vissum að við myndum sigra í kvöld

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Declan Rice stóð sig mjög vel í mögnuðum sigri enska landsliðsins á útivelli gegn heims- og Evrópumeisturum Spánar í Þjóðadeildinni í kvöld.

TENGT EFNI
Þjóðadeildin: Tíu Englendingar höfðu betur á Spáni
Rice var kröftugur á miðjunni og gaf stoðsendingu á Ezri Konsa sem skoraði með skalla eftir hornspyrnu.
„Við vissum að við myndum sigra þennan leik í kvöld. Við ætluðum að koma hingað og sýna okkar rétta andlit með því að spila hátt uppi á vellinum og nýta yfirburðina sem við höfum í líkamsstyrk, og við gerðum það. Við vildum ekki koma hingað og beita skyndisóknum," sagði Rice.
„Við vissum það strax frá fyrstu mínútu að við myndum vinna þennan leik. Við vorum frábærir fyrstu tíu mínúturnar, það voru líklega bestu tíu mínútur sem við höfum spilað saman sem landslið. Við pressuðum þá svo stíft og vorum óheppnir að skora ekki tvö eða þrjú mörk á þessum kafla."
England var sterkari aðilinn stærsta hluta leiksins, allt þar til Elliot Anderson fékk beint rautt spjald og vítaspyrnu gegn sér fyrir brot sem aftasti varnarmaður á 63. mínútu.
„Rauða spjaldið gjörbreytti leiknum, við hefðum getað unnið þá enn stærra ef það atvik hefði aldrei gerst. Við fengum færin til að skora meira og hefðum fengið enn fleiri færi til að auka forskotið á lokakaflanum. Við gerðum vel að halda þetta út spilandi einum færri í hálftíma. Það er magnað afrek að leggja þetta lið af velli, þeir voru ósigraðir í 43 leikjum fyrir þetta!"
Rice rifjaði upp tap Englendinga gegn Argentínu í undanúrslitum heimsmeistaramótsins og er mjög ánægður með breytinguna á hugarfarinu síðan þá.
„Þegar þeir skoruðu annað markið sitt óttaðist maður í smá stund að þeir gætu jafnað þetta og jafnvel fundið sigurmark, en við stóðum vaktina vel. Við gerðum það sem okkur tókst ekki að gera gegn Argentínu þennan örlagaríka dag. Við vörðumst hetjulega í kvöld og þetta er risastór sigur fyrir okkur."
Rice nýtti svo tækifærið til að hrósa James Trafford sem varði nokkrum sinnum meistaralega á lokamínútunum til að tryggja sigurinn.
England vinnur riðilinn með þessum sigri og munu bæði stórveldin taka þátt í úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar.