Fotbolti.net
16.01.18 - 15:46
Magnús Már Einarsson

Rúnar Már til St. Gallen (Staðfest)

Rúnar Már Sigurjónsson.

Rúnar Már Sigurjónsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn Rúnar Már Sigurjónsson hefur gengið til liðs við svissneska félagið St Gallen á láni frá Grasshopper. Hinn 27 ára gamli Rúnar þekkir svissnesku deildina vel en hann hefur leikið með Grasshopper í eitt og hálft ár.

St. Gallen er í 4. sæti í svissnesku deildinni, þremur stigum á undan Grasshopper sem er í sjötta sætinu.
Rúnar Már átti ekki fast sæti í liði Grasshopper síðustu vikurnar en nokkur félög hafa sýnt honum áhuga að undanförnu.

Rúnar, sem er að berjast um sæti í íslenska landsliðshópnum fyrir HM, ákvað að ganga í raðir St. Gallen.

„Með því að fá Rúnar Sigurjónsson þá höfum við krækt í reyndan leikmann sem gefa okkur nauðsynlega breidd á miðjunni,\" sagði Alain Sutter íþróttastjóri St. Gallen.

„Rúnar er mjög metnaðarfullur leikmaður sem vill sanna sig hjá St.Gallen.\"

Now it´s official that Rúnar Már Sigurjónsson has signed for St. Gallen on loan until the end of the season. 🇮🇸👏 #TeamTotalFootball pic.twitter.com/84VvPz10VB

— Total Football (@totalfl) January 16, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.