Andri Rúnar Bjarnason hefur verið að glíma við meiðsli en vonast til að það versta sé að baki.
Honum hefur gengið illa að stimpla sig inn með Esbjerg í danska boltanum vegna meiðslanna en hann kom inn af bekknum í tapi liðsins í æfingaleik í dag.
Esbjerg var 5-1 undir gegn Randers og náði Andri Rúnar að minnka muninn með laglegu marki undir lokin.
Andri fékk boltann til sín á lofti innan vítateigs og ákvað að skella sér í bakfallsspyrnu, sem heppnaðist vel og endaði í netinu.
Ólafur Kristjánsson þjálfar Esbjerg sem deilir toppsæti dönsku B-deildarinnar með Esbjerg. Bæði lið eru með 38 stig eftir 16 umferðir.
🔥 @Andrirunar 👀 pic.twitter.com/EMTTTfREqk
— Esbjerg fB (@EsbjergfB) January 16, 2021
Athugasemdir