Enska félagið Arsenal er búið að leggja fram tilboð í Dusan Vlahovic, framherja Fiorentina. Ítalski miðillinn Corriere della Sera segir frá.
Vlahovic er einn eftisóttasti bitinn á markaðnum þessa stundina en serbneski sóknarmaðurinn er með 19 mörk í 23 leikjum í öllum keppnum á þessu tímabili.
Hann verður samningslaus á næsta ári og hefur hann þegar ákveðið að framlengja ekki samning sinn við Flórensarfélagið.
Arsenal, Tottenham og Atlético Madríd eru í harðri baráttu um hann en Arsenal er búið að leggja fram tilboð eftir því sem Corriere della Sera kemst næst.
Félagið er búið að bjóða 50 milljónir punda og þá fær Fiorentina úrúgvæska miðjumanninn Lucas Torreira með en hann er á láni frá Arsenal.
Ekki er ljóst hvort Fiorentina sé reiðubúið að selja Vlahovic í þessum glugga.
Athugasemdir