Venni: Höfum lagt meira á okkur í ár - Markmiðið að fara upp
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

KV sigraði í gær C-deild Fótbolta.net mótsins annað árið í röð eftir úrslitaleik gegn Kórdrengjum. Baldvin Már Borgarsson, fréttaritari Fótbolta.net, var á leiknum í gærkvöldi og afhenti sigurverðlaunin að leik loknum.
Baldvin ræddi þá einnig við Sigurvin Ólafsson eða Venna, þjálfara KV, í gærkvöldi.

„Ég verð að viðurkenna að mér finnst þetta alveg geggjað. Þó þetta sé undirbúningsmót og allt það þá er hrikalega gaman að vinna," sagði Venni eftir leikinn. KV sigraði leikinn 1-2 eftir að hafa lent undir.
„Við byrjum aðeins fyrr okkar undirbúning fyrir komandi tímabil heldur en við gerðum fyrir það síðasta, við höfum lagt aðeins meira á okkur í ár. Við ætlum að gera betur en í fyrra."
Viðtalið í heild sinni má sjá og heyra efst í spilaranum.
Venni var spurður hvort stefnan væri að fara upp úr 3. deildinni í sumar: „Ég get ekki neitað því. Ég veit ekki hversu líklegt það er - þekki alveg hvernig andstæðingarnir eru í deildinni en markmiðið er alltaf að fara upp."
„Ég hef ekki stúderað það hvernig hin liðin verða í ár eða hvað hefur breyst hjá þeim frá því í fyrra. Svo veit ég ekki hvernig mitt lið verður. Það eru töluverðar breytingar á okkar liði frá því í fyrra."
„Ég á von á einhverjum mönnum frá Bandaríkjunum úr skóla og svo gætu einhverjir fleiri bæst við," sagði Sigurvin.