Marko Dmitrovic markvörður Sevilla hefur svo sannarlega fengið að finna fyrir því í Evrópudeildinni á þessari leiktíð en hann varð fyrir árás af hálfu stuðningsmanna Fenerbache í kvöld.
Sevilla er komið áfram í 8 liða úrslit eftir 2-1 sigur samtals gegn Fenerbache en liðið vann heimaleikinn í kvöld 2-0.
Dmitrovic varð fyrir árás af hálfu stuðningsmanns PSV í viðureign liðanna í forkeppni 16 liða úrslitanna og fékk kveikjara í höfuðið í kvöld sem varð til þess að hann fékk gat á höfuðið.
Stuðningsmaður PSV var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir árásina.
Leiðinlegt atvik átti sér stað í viðureign Sivaspor og Fiorentina í Sambandsdeildinni þar sem Alessandro Bianco var kýldur af stuðningsmanni Sivaspor þegar liðið fagnaði fjórða marki Fiorentina í 4-1 sigri.
???? Shocking scenes in Sivas where a pitch invader punched Fiorentina midfielder Alessandro Bianco during La Viola's goal celebrations. pic.twitter.com/RJWs4eJC1P
— Football Italia (@footballitalia) March 16, 2023