City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 11:17
Elvar Geir Magnússon
Afturelding að fá norskan framherja
Lengjudeildin
Joacim Holtan.
Joacim Holtan.
Mynd: Bryne
Afturelding er að fá til sín norska sóknarmanninn Joacim Holtan samkvæmt heimildum Fótbolta.net.

Mosfellingar féllu úr Bestu deildinni í fyrra og eru að vinna í því að styrkja leikmannahóp sinn fyrir komandi tímabil í Lengjudeildinni.

Holtan er 27 ára og er félagslaus eftir að hafa yfirgefið Kongsvinger um síðustu áramót.

Hann skoraði fjögur mörk í 21 leik í norsku B-deildinni í fyrra en hann hefur einnig leikið fyrir Egersund, Start og Haugesund.

Hann á fjórtán leiki að baki í efstu deild Noregs og hefur skorað 38 mörk í 108 leikjum í B-deildinni samkvæmt Transfermarkt.

Afturelding

Komnir
Óðinn Bjarkason frá KR (var á láni hjá ÍR)
Jón Vignir Pétursson frá Selfossi
Daníel Darri Þorkelsson frá KFG
Kristján Hjörvar Sigurkarlsson frá Kára
Bart Kooistra frá HK

Farnir
Hrannar Snær Magnússon til Noregs
Jökull Andrésson í FH
Aron Jóhannsson hættur
Oliver Sigurjónsson hættur
Aron Jónsson í FH
Arnór Gauti Ragnarsson hættur
Þórður Gunnar Hafþórsson í Vestra
Bjarni Páll Linnet Runólfsson í Fram
Athugasemdir
banner