Ítalski þjálfarinn Carlo Ancelotti hefur útskýrt ástæðuna fyrir því að hann hafi ákveðið að velja ekki Neymar í brasilíska landsliðshópinn fyrir æfingaleikina gegn Frakklandi og Króatíu í þessum mánuði.
Neymar er einn besti leikmaður í sögu brasilíska landsliðsins, en hann er markhæstur í sögu landsliðsins og var lengi vel þeirra besti leikmaður.
Hann ætlar sér að fara með Brasilíu á HM í sumar sem verður líklega hans síðasta tækifæri til þess að vinna mótið, en það vakti athygli að hann er ekki í hópnum fyrir leikina í þessum mánuði.
Ancelotti segir Neymar enn eiga möguleika á að komast á HM, en að þetta hafi ekki verið rétti tíminn til að taka hann inn í hópinn.
„Það má vera að Neymar fari með á HM en það er ekki víst. Það veltur á því hvort hann verði hundrað prósent leikfær. Ef hann nær því þá á hann augljósan möguleika á að fara með. Ástæðan fyrir að ég kallaði hann ekki inn í hópinn er af því hann er ekki hundrað prósent og ég þarf leikmenn sem eru í toppformi,“ sagði Ancelotti.
Vonin er ekki úti fyrir Neymar því Ancelotti mun velja úrtakshóp rétt fyrir HM. Brasilía mun þá spila nokkra æfingaleiki áður en Ancelotti velur lokahópinn.
Athugasemdir


