City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 22:37
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Brentford og Wolves: Skotmark Bayern átti ömurlegt kvöld
Kevin Schade var ekki góður hjá Brentford
Kevin Schade var ekki góður hjá Brentford
Mynd: EPA
Adam Armstrong var maður leiksins er Úlfarnir komu til baka og náðu í 2-2 jafntefli gegn Brentford í Lundúnum í kvöld. Sky Sports gaf honum 8 í einkunn.

Armstrong skoraði fyrra mark gestanna sem kom þeim inn í leikinn og í þeim síðari kom meiri orka í liðið.

Tolu Arokodare jafnaði metin á 78. mínútu og var nálægt því að gera sigurmarkið stuttu síðar og það aðeins nokkrum mínútum eftir að hafa komið inn af bekknum.

Armstrong og Joao Gomes fá 8 í einkunn, en Igor Thiago og Michael Kayode, markaskorarar Brentford, voru bestir þar með 7 í einkunn.

Kevin Schade, sem hefur verið orðaður við stórlið Bayern München og fleiri stór félög í ensku úrvalsdeildinni, átti ömurlegan dag í liði Brentford, en hann fær aðeins 4 í einkunn.

Brentford: Kelleher (5), Kayode (7), Collins (5), van den Berg (5), Lewis-Potter (5); Jensen (5), Henderson (5), Damsgaard (5), Ouattara (6), Thiago (7), Schade (4).
Varamenn: Yarmoliuk (5), Ajer (6), Nelson (5).

Wolves: Sa (6), Tchatchoua (7), Mosquera (6), S Bueno (6), Krejci (5), H Bueno (6), Andre (7), J Gomes (8), Bellegarde (7), Mane (5), Armstrong (8).
Varamenn: A Gomes (6), Tolu Arokodare (7).
Athugasemdir
banner
banner