City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Rooney: Bruno er besti leikmaður deildarinnar
Bruno Fernandes
Bruno Fernandes
Mynd: EPA
Wayne Rooney, markahæsti leikmaður í sögu Manchester United, segir Bruno Fernandes vera besta leikmann deildarinnar á þessari leiktíð en þetta sagði hann í Match of the Day.

Fernandes hefur verið í ár, eins og önnur ár, einn af bestu leikmönnum United.

Hann bætti félagsmet Man Utd þegar kemur að stoðsendingum á einu tímabili í deildinni er hann lagði upp tvö mörk í 3-1 sigrinum á Aston Villa í gær.

Fernandes er kominn með sextán stoðsendingar og bætti met David Beckham sem lagði upp fimmtán deildarmörk á einu tímabili.

Þá hefur hann skorað sjö mörk en Rooney er á þeirri skoðun að Fernandes hafi verið besti leikmaður deildarinnar á tímabilinu.

„Mér finnst hann vera besti leikmaður deildarinnar á þessu tímabili,“ sagði Rooney.

„Fyrri hálfleikurinn var flatur hjá báðum liðum og kannski núlluðu þau hvort annað út, en í seinni hálfleiknum spilaði United með meiri orku. Aðalmaður United var aftur Bruno Fernandes. Það var hann sem réði úrslitum,“ sagði hann enn fremur.

Man Utd er í þriðja sæti deildarinnar með 54 stig og á góðri leið með að koma sér í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Bruno hefur átt stóran þátt í góðum árangri liðsins síðustu vikur.

Síðan hann kom frá Sporting fyrir sex árum hefur hann komið að 208 mörkum í 319 leikjum í öllum keppnum.
Athugasemdir
banner
banner