Igor Tudor, stjóri Tottenham, segist ekki vera að pæla í framtíð sinni sem stjóri félagsins og að hann vilji nýta orkuna sína í að bæta liðið en þetta sagði hann eftir 1-1 jafnteflið gegn Liverpool í gær.
Tudor byrjaði ekkert sérstaklega vel með Tottenham, en hann tók við starfinu af Thomas Frank sem var látinn fara eftir slakt gengi.
Í gær kom fyrsta stigið undir stjórn Tudor, en síðustu daga hefur staða hans verið rædd í fjölmiðlum og talað um að tap gegn Liverpool myndi kosta hann starfið.
Hann mun væntanlega halda því eftir úrslit gærdagsins, en hann segist ekki hafa neinn tíma í að pæla í því sem mun gerast í framtíðinni.
„Veistu hvernig starf þjálfarans er? Ég hef þjálfað í fimmtán ár og aldrei hef ég hugsað um framtíð mína. Ekki í eina sekúndu. Ég hugsa aldrei um hana eða fortíðina. Ég hugsa alltaf um æfinguna sem er á morgun og hvernig ég get hjálpað leikmönnunum.“
„Ég les ekkert og horfi á ekkert. Framtíðin er bara ímyndun og er í raun ekki til. Ég tapa bara orku á því að hugsa um hvað mun gerast og það gefur manni ekkert, hvorki í þessu starfi né í lífinu. Einbeittu þér að núinu og því sem er að gerast akkúrat í augnablikinu. Það er lykillinn og þannig kemstu frá öllum þessum hugsunum um hvað mun gerast eða koma þér í hugarástand sem gerir ekkert fyrir þig. Þannig best er að halda sér í núinu, vera einbeittur og sjá hverju þú getur breytt. Allir þjálfarar eru í sömu sporum,“ sagði Tudor.
Tottenham er einu stigi fyrir ofan fallsæti þegar átta umferðir eru eftir. Dagskráin hjá Tottenham er ágæt en það á samt eftir að mæta bæði Aston Villa og Chelsea sem eru í baráttu um Evrópusæti.
Næsti leikur Tottenham er gegn Atlético Madríd í seinni leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en Atlético er 5-2 yfir í einvíginu.
Athugasemdir



