Arsenal er komið í undanúrslit Meistaradeildarinnar annað árið í röð eftir að hafa slegið Sporting úr leik. Liðin gerðu markalaust jafntefli í gær en Kai Havertz skoraði eina markið í viðureigninni í fyrri leiknum.
Arsenal hefur spilað vel á tímabilinu og er á toppnum í úrvalsdeildinni en liðið hefur legið undir mikilli gagnrýni undanfarið eftir að hafa tapað í úrslitum deildabikarsins gegn Man City og í 8-liða úrslitum enska bikarsins gegn Southampton.

„Ég vildi óska þess að við værum að gera heimildamynd um Arsenal á þessu tímabili. Þá gætu menn tekið upp það sem hefur verið sagt um okkur síðustu tvo daga. Svo myndum við horfa á þetta í júlí og spyrjum okkur: Hvar endar Arsenal? Allir myndu segja í neðstu þremur sætunum (miðað við gagnrýnina). Hvað erum við að tala um? Vinsamlegast njótið þess að vera þar sem við erum sem félag," sagði Arteta eftir leikinn í gær en Arsenal átti aðeins eitt skot á markið í leiknum.
„Ef einhver vill ekki gera þetta, þá er það bara þannig. Við njótum þess mjög mikið og ég er mjög þakklátur fyrir það sem leikmennirnir eru að gera og stuðningsmenn okkar, svo takk fyrir.“