Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 16. maí 2019 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þróttur R. fékk tvær á gluggadegi (Staðfest)
Bryndís í leik með FH.
Bryndís í leik með FH.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Þróttur R. bætti við sig tveimur leikmönnum fyrir átökin í Inkasso-deild kvenna í gær.

Bryndís Hrönn Kristinsdóttir kemur til Þróttar frá FH. Hún á nokkra leiki að baki í Pepsi-deildinni með Stjörnunni, ÍBV, Fylki og FH. Hún lék til dæmis stórt hlutverk með FH 2017 og 2016 í deild þeirra bestu.

Á síðustu leiktíð spilaði hún fimm leiki með ÍR í Inkasso-deildinni.

Þróttur fékk einnig Leu Björt Kristjánsdóttur, sem er fædd árið 2000. Hún kemur á láni frá Val.

Hún spilaði með 2. flokk Vals gegn Þrótti á dögunum og skoraði þá tvö mörk í 6-1 sigri.

Þrótti er spáð fjórða sæti í Inkasso-deildinni í sumar.

Þess má geta að félagaskiptaglugginn lokaði í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner